Líftæknifyrirtækið Cellbricks Therapeutics hefur tryggt sér 10 milljónir evra, eða sem nemur um 1,5 milljarði íslenskra króna, til að halda áfram þróun á svokölluðum lífprentuðum (e. biofabricated) vefjum. Fyrirtækið hefur þróað sérstaka tækni til að þrívíddarprenta lifandi mannavef sem er búinn eigin æðakerfi. Það er algjört lykilatriði í allri vefjaverkfræði, því án blóðflæðis geta stærri vefir ekki lifað af og samlagast líkamanum.
Nýja fjármagnið verður nýtt til að hefja dýratilraunir og undirbúa klínískar rannsóknir á mönnum. Í fyrstu mun fyrirtækið einblína á að framleiða fituvef til ígræðslu. Slíkir vefir gætu skipt sköpum við meðhöndlun á flóknum áverkum, sáragræðslu og í lýtalækningum. Þetta þýðir til dæmis að í stað þess að nota gerviefni á borð við sílikon við brjóstauppbyggingu, væri hægt að græða lifandi, náttúrulegan vef í sjúklinginn sem vex og hegðar sér eins og hans eigin líkami.
Fjárfestingin er leidd af Silicon Roundabout Ventures ásamt þýsku nýsköpunarstofnuninni SPRIND og fleirum. Fyrir vísindasamfélagið og þá sem rannsaka langlífi er þetta þó aðeins byrjunin. Lokamarkmið Cellbricks er mun metnaðarfyllra: að byggja upp tækniþekkingu til að geta þrívíddarprentað heil, starfhæf mannslíffæri. Takist það gæti það umbylt líffæragjöf og opnað nýjar dyr í öldrunarfræðum, þar sem í framtíðinni gæti orðið hægt að skipta út skemmdum eða öldruðum líffærum fyrir ný og fersk.